03.10.2016

Arion banki eign­ast trygginga­félagið Vörð

Arion banki hefur eignast 100% hlutafjár í tryggingarfélaginu Verði. Í október á síðasta ári sömdu Arion banki og BankNordik um kaup Arion banka á tryggingafélaginu af BankNordik. Samningurinn var skilyrtur og meðal annars háður samþykki opinberra aðila. Öll skilyrði samingsins hafa verið uppfyllt.

Kjörin hefur verið ný stjórn Varðar. Í henni sitja Helgi Bjarnason, formaður, Ásta Guðjónsdóttir, Guðný Benediktsdóttir, Marinó Örn Tryggvason og Þorvarður Sæmundsson.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Það er ánægjulegt að kaupin hafi nú gengið í gegn en það tók lengri tíma en við væntum að uppfylla öll skilyrði samninganna. Það er mikilvægur þáttur í okkar stefnu að bjóða viðskiptavinum okkar alhliða fjármálaþjónustu og með kaupunum á Verði þá bætast skaðatryggingar við okkar fjölbreytta vöru- og þjónustuframboð, en líftryggingar hafa lengi verið hluti af okkar þjónustu í gegnum Okkar líftryggingar. Vörður er öflugt fyrirtæki með sterkt vörumerki á íslenskum tryggingamarkaði og við hlökkum til frekari uppbyggingar félagsins.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira