19.01.2017

Arion banki einn af aðal­bak­hjörl­um al­þjóð­legr­ar ráð­stefnu um vísi­tölu félags­legra fram­fara

Nýlega undirrituðu Arion banki og ráðgjafafyrirtækið Cognitio samstarfssamning í tengslum við alþjóðlegu ráðstefnuna ,,What Works“ sem haldin verður í Hörpu í annað sinn dagana 24.-26.apríl. Efni ráðstefnunnar er vísitala félagslegra framfara (Social Progress Index) en það er vísitala sem mælir samfélagslega innviði þjóða.

Þriðjudaginn 17. janúar var haldinn áhugaverður morgunverðarfundur í höfuðstöðvum Arion banka þar sem vísitalan um félagslegar framfarir var kynnt. VFF vísitalan er reiknuð út árlega fyrir 133 lönd í hinum ýmsu heimsálfum og 272 svæði innan Evrópusambandsins og mælir hversu vel tekist hefur til við að tryggja íbúum aðgengi að grunnþörfum, almenna velferð og tækifæri til betra lífs. Meðal þátta sem teknir eru inn í vísitöluna eru aðgengi að heilsugæslu, menntun og hagkvæmu húsnæði sem og staða jafnréttismála og trúfrelsis. Því er um að ræða nýja nálgun til að mæla árangur samfélaga en hingað til hefur fyrst og fremst verið horft til hagrænna þátta.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, Rósbjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Cognitio, Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins og Sigurður Páll Hauksson, forstjóri Deloitte, voru með erindi á fundinum.

Meðfylgjandi eru myndir frá fundinum í höfuðstöðvum Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira