11.07.2017

Arion banki er besti bank­inn að mati Euromo­ney

Alþjóðlega fjármálatímaritið Euromoney hefur valið Arion banka besta bankann á Íslandi. Arion banki hlýtur því viðurkenninguna Euromoney's Awards for Excellence en niðurstaðan var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Tower of London í síðustu viku.

Í niðurstöðu dómnefndar segir meðal annars að Arion banki hafi náð lengst íslenskra banka hvað varðar góðan rekstur og endurspegli best árangur íslensks efnahagslífs á undanförnum árum. Bent er á að árið 2010 hafi aðeins 25 prósent útlána verið til einstaklinga en árið 2016 hafi það hlutfall verið komið í 47 prósent. Á sama tíma fóru lán í vanskilum frá því að vera rúmlega helmingur af lánasafni bankans niður í 1,6 prósent. Þá var einnig litið til endurskipulagningar bankans á borð við sölu eigna og skráningu félaga á markað auk öflugrar starfsemi Valitor, Stefnis og Varðar sem allt eru dótturfélög Arion banka.

Verðlaunin eru ekki bara staðfesting á góðum árangri Arion banka á síðustu misserum og árum heldur einnig hvatning til áframhaldandi góðra verka. Við hjá Arion banka munum áfram leggja áherslu á faglega ráðgjöf og aðgengi að stafrænum lausnum. Þannig veitum við þægilegri bankaþjónustu fyrir framtíðina.

Um Euromoney:

Euromoney hefur fjallað um málefni fjármálageirans í hátt í 50 ár. Verðlaunin Euromoney's Awards for Excellence hafa verið veitt frá árinu 1992 og voru þá fyrst sinnar tegundar. Árið 2017 bárust 1.500 tilnefningar en veitt voru um 170 verðlaun á heims-, svæðis- og landsvísu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira