08.01.2016

Arion banki er einn af aðal­bak­hjörl­um Hörpu

Arion banki og tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa hafa gert með sér samkomulag þess efnis að bankinn verði áfram einn af aðalbakhjörlum Hörpu. Markmið samstarfssamningsins er að styrkja menningar- og tónlistarstarf á Íslandi, kynna fjölbreytta starfsemi Hörpu fyrir almenningi og upplýsa viðskiptavini Arion banka sérstaklega um listviðburði á þessum vettvangi.

Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs Arion banka:
„Harpa þjónar mikilvægu hlutverki sem einn af burðarásum í íslensku menningarlífi. Það er okkur ánægjuefni að styðja við það merka og metnaðarfulla starf sem þar fer fram.“

Myndin: Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs Arion banka, Jón Gunnar Björnsson, innkaupastjóri bankans og Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpu, undirrituðu samninginn sem gildir til tveggja ára.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira