11.04.2018

Arion banki er fyrir­mynd­ar­fyrir­tæki í góð­um stjórnar­hátt­um

Arion banki hlaut í gær viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum. Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka, veitti viðurkenningunni móttöku.

Það er Rannsóknamiðstöð um stjórnarhætti sem veitir viðurkenninguna en afhendingin er hluti af árlegri ráðstefnu miðstöðvarinnar. Tilgangur ráðstefnunnar er að vekja athygli á mikilvægi góðra stjórnarhátta, alþjóðlegum straumum og stefnum í stjórnarháttum og vinnu íslenskra stjórnarmanna við að efla stjórnarhætti.

Arion banki fékk viðurkenninguna fyrst í ársbyrjun 2016 að undangengnu formlegu mati sem unnið var á árinu 2015. Matið byggði á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland gefa út. Úttektin á stjórnarháttum bankans gildir til þriggja ára og hefur Arion banki því hlotið viðurkenningu sem þessa árlega frá þeim tíma.

Um er að ræða mikilvæga staðfesting á því að bankinn ástundi góða stjórnarhætti sem er eitt af grunnstefjum stefnu bankans og samfélagsábyrgðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira