12.04.2019

Arion banki er fyrir­mynd­ar­fyrir­tæki í góð­um stjórnar­hátt­um

Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands veitti í gær Arion banka viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum. Viðurkenningin var veitt að undangengnu formlegu mati á stjórnarháttum bankans sem unnin var af viðurkenndum úttektaraðila í febrúar 2019. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, veitti viðurkenningunni móttöku en afhendingin var hluti af árlegri ráðstefnu um góða stjórnarhætti. Höskuldur var jafnframt með erindi á ráðstefnunni í gær en þema ráðstefnunnar í ár var hæfni og hæfi stjórnarmanna.

Arion banki fékk fyrst viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti árið 2015 að undangengnu formlegu mati sem gilti í þrjú ár. Matið á góðum stjórnarháttum sem framkvæmt var í ár byggir líkt og áður á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland gefa út og gildir sömuleiðis í þrjú ár.

Tilgangur ráðstefnunnar um góða stjórnarhætti er að vekja athygli á mikilvægi góðra stjórnarhátta, alþjóðlegum straumum og stefnum í stjórnarháttum og vinnu íslenskra stjórnarmanna við að efla stjórnarhætti. Viðurkenningin er mikilvæg staðfesting á því að bankinn ástundi góða og vandaða stjórnarhætti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira