19.01.2016

Arion banki er fyrir­mynd­ar­fyrir­tæki í góð­um stjórnar­hátt­um

Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti veitti nýlega Arion banka viðurkenningu fyrir að vera Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum. Það eru Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq OMX Iceland hf. og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands sem standa að baki viðurkenningarinnar. Er það mat Rannsóknarmiðstöðvarinnar að niðurstaða úttektar KPMG á stjórnarháttum Arion banka, sem unnin var í september 2015, gefi skýra mynd af stjórnarháttum fyrirtækisins og bendi til þess að fyrirtækið geti að mörgu leyti verið öðrum fyrirtækjum til fyrirmyndar þegar kemur að góðum stjórnarháttum.

Höskuldur H. Ólafsson:

,,Við höfum lagt ríka áherslu á vandaða stjórnarhætti innan Arion banka og er þessi viðurkenning ákveðin staðfesting á því að við erum að gera vel í þessum efnum. Við erum stolt af því að Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti hafi veitt okkur þessa viðurkenningu.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira