03.04.2020

Arion banki er kyndil­beri staf­rænnar veg­ferð­ar

Íslensku vefverðlaunin voru afhent 13. mars síðastliðinn en árlega veita Samtök vefiðnaðarins, SVEF, verðlaun fyrir þá vefi og veflausnir sem þykja skara fram úr.

Arion banki fékk sérstaka viðurkenningu dómnefndar og var útnefndur kyndilberi í stafrænni vegferð. Í lýsingu frá dómnefnd kemur fram:

,,Kyndilberar í stafrænni vegferð setja þarfir notenda í fyrsta sæti og stefna fyrst og fremst að því að veita þeim aukna þjónustu og ánægjulega upplifun. Til þess að ná þessu markmiði þarf oft að leysa flókin tæknileg vandamál, samþætta áður ótengd kerfi og hugsa langt út fyrir kassann. Erfiðið er þess virði enda skilar það sér í framúrstefnulegum lausnum fyrir notendur.“

Þá fékk bankinn verðlaun fyrir tæknilausn ársins fyrir tryggingar í Arion appinu. Í umsögn dómnefndar kemur fram:

,,Tæknilausnin sýnir fram á mikinn metnað í aukinni þjónustu við notendur. Þjónustan er ný af sínu tagi og er framkvæmd á stílhreinan hátt. Notendaupplifunin er traustvekjandi og ánægjuleg.“

Við hjá Arion banka erum afar stolt af árangrinum og þökkum kærlega fyrir viðurkenningarnar. Við munum halda ótrauð áfram að þróa stafrænar lausnir fyrir viðskiptavini og að bjóða áfram upp á framúrskarandi stafræna bankaþjónustu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira