06.03.2020

Arion banki er sig­ur­veg­ari ís­lensku ár­angurs­verð­laun­anna

Arion banki er sigurvegari íslensku árangursverðlaunanna, Árunnar, sem veitt eru fyrir árangursríkustu auglýsingaherferðina 2019. Verðlaunin voru afhent í dag þann 6. mars á ÍMARK hátíðinni fyrir herferðina Arion appið – þægilegri bankaþjónusta.

Árangursverðlaununum er ætlað að beina sjónum að herferðum sem skilað hafa framúrskarandi árangri en það eru stjórnir ÍMARK og SÍA sem veita verðlaunin. Bankinn fékk verðlaunin fyrir auglýsingaherferð þar sem kostir Arion appsins eru kynntir og þær fjölmörgu aðgerðir sem hægt er að framkvæma í því viðskiptavinum til þæginda. Sem dæmi má nefna, greiðsludreifingu kredikorta, tryggingar frá Verði, núlán, fjármálin mín þar sem viðskiptavinir hafa fulla yfirsýn yfir tekjur og útgjaldaliði, stofnun sparnaðarreikninga og opnun appsins fyrir yfirlit yfir reikninga frá Íslandsbanka og Landsbanka.

Halldór Harðarson, sölu- og markaðsstjóri Arion banka tók á móti verðlaununum og var með erindi um herferðina og þann góða árangur sem náðst hefur við kynningu á Arion appinu.

“Við erum afskaplega stolt af því að hljóta þessi verðlaun. Arion banki hefur markað sér sérstöðu sem fremsti bankinn á Íslandi í stafrænni þjónustu. Það gerist ekki af sjálfu sér – heldur með samstilltu og einbeittu samstarfi þvert á bankann. Markaðsaðgerðir Arion banka hafa vakið mikla athygli og árangurinn af þeim hefur farið fram úr væntingum. Ég vil óska öllum sem hafa komið að þessu skapandi og skemmtilega verkefni til hamingju og þá ekki síst auglýsingastofunni okkar Hvíta húsinu.”

Arion banki vann síðast Áruna árið 2016 auk þess sem bankinn var valinn markaðsfyrirtæki ársins árið 2018.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira