12.03.2019

Arion banki er stolt­ur bak­hjarl Nordic Health Hackat­hon

Nordic Health Hackathon er viðskipta- og forritunarkeppni þar sem bæði íslensk og alþjóðleg teymi keppast við að búa til lausnir sem tengjast heilsu. Norðurlöndin búa almennt við gott aðgengi að heilbrigðiskerfi og gæði þess eru mikil á alþjóðavísu. Markmið keppninnar er að þátttakendur þrói notendavænar lausnir sem stuðla að bættri heilsu og lífsgæðum. Keppnin mun fara fram í Háskólanum í Reykjavík 22.-24. mars 2019.

Stuðningur Arion banka við keppnina felst í því að þátttakendur munu hafa aðgang að forritunarviðmóti (API) þar sem færslur (tilbúinna) einstaklinga verða gerðar aðgengilegar. Færslurnar eru flokkaðar eftir fyrirfram skilgreindum þáttum af Meniga, til dæmis húsaleigu, samgöngum, matarinnkaupum, veitingahúsum, ferðalögum o.s.frv. Markmiðið er að þátttakendur geti nýtt sér þessi fjárhagslegu gögn í samhengi við heilsufarstengdar upplýsingar til að þróa lausnir sem stuðla að auknum lífsgæðum notenda.

Arion banki mun veita peningaverðlaun fyrir tvær bestu lausnirnar á þessu sviði, annars vegar 350 þúsund krónur og hins vegar 150 þúsund krónur. Verðlaun verða veitt teymum sem sýna framúrskarandi notkun á fjárhagslegum gögnum til að stuðla að betra lífi notenda.

Arion banki hefur verið leiðandi á íslenskum bankamarkaði þegar kemur að nýsköpun. Frá árinu 2012 hefur bankinn staðið fyrir viðskiptahraðlinum Startup Reykjavik og fjárfest í um 70 íslenskum sprotafyrirtækjum sem hafa hlotið inngöngu í hraðalinn. Árið 2016 var bankinn fyrstur íslenskra fjármálafyrirtækja til að standa fyrir hakkaþoni þar sem þátttakendur þróuðu nýjar fjármálalausnir. Frá sama ári hefur þróun nýrra vara og þjónustu farið fram í innri viðskiptahraðli bankans þar sem nær 20 nýjar vörur og þjónustuleiðir hafa litið dagsins ljós, þ.m.t. þróun apps Arion banka sem er að mati Íslendinga besta bankaapp á Íslandi skv. könnun MMR.

Nánari upplýsingar um keppnina má finna á vefsíðu NHH. Hægt er að lesa meira um stafræna þróun hjá Arion banka hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira