11.05.2018

Arion banki fær al­þjóð­leg verð­laun fyrir bylt­ingar­kennda nýj­ung í staf­rænni þjónustu

Arion banki hlaut í gær verðlaun fagtímaritsins Retail Banker International fyrir byltingarkenndustu nýjung í bankaþjónustu á árinu (e. Most Disruptive Innovation of the Year). Verðlaunin voru veitt fyrir rafræn íbúðalán bankans en Arion banki býður upp á greiðslumat á aðeins örfáum mínútum og rafræn íbúðalán með þægilegri hætti en áður hefur þekkst.

Bankinn keppti við stór fjármálafyrirtæki á borð við Santander, Nordea og RBC en aðeins tveir bankar fengu fleiri tilnefningar. Verkefnin, sem Arion banki var tilnefndur fyrir, voru:

  • Rafrænt íbúðalánaferli í flokknum besta tækni gagnvart viðskiptavinum (e. Best Customer Facing Technology)

  • Greiðslumat á þremur mínútum í flokknum upplýsingatækninýjung ársins (e. Best IT Transformation)

  • Rafrænt íbúðalánaferli í flokknum byltingarkenndasta nýjung ársins (e. Most Disruptive Innovation of the Year)

  • Rafrænt íbúðalánaferli í flokknum besta umbreyting á þjónustu (e. Best Service Innovation)

  • Stafræn framtíð í flokknum besta umbreyting í upplýsingatækni (e. IT Innovation of the Year)

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Við í Arion banka erum stolt af þeirri miklu ánægju sem við höfum fundið meðal viðskiptavina okkar með þær stafrænu lausnir sem við bjóðum upp á, en það er líka ánægjulegt að fá viðurkenningu eins og þessa. Við höfum einsett okkur að vera í forystu í þessum efnum og mikið kapp hefur verið lagt á þróun stafrænna lausna innan bankans og við munum halda áfram á þeirri braut.“

Skrá mig í viðskipti

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira