05.07.2018

Arion banki fær hæstu ein­kunn fyrir jafn­rétt­is­mál

Arion banki skorar hæst allra skráðra fyrirtækja á Íslandi þegar kemur að jafnrétti samkvæmt vísitölu fyrirtækisins Gemmaq en bankinn fær þar fullt hús stiga. Bankinn skorar jafnframt hæst í samanburði við önnur fyrirtæki á markaði á Norðurlöndunum (Nasdaq Nordic og Oslo Börs).

Gemmaq kvarðinn mælir kynjahlutföll í framkvæmdastjórnum og stjórnum meðal skráðra félaga á alþjóðamörkuðum. Gemmaq hefur mælt öll félög á íslenskum hlutabréfamarkaði sem eru að meðaltali með einkunnina 7 en Arion banki er hæstur með einkunnina 10.

Um aðferðafræðina

Einkunnir eru gefnar á skalanum 1-10 þar sem 10 merkir jöfn kynjahlutföll, þar sem framkvæmdastjórn og stjórn hafa jafnt vægi í útreikningnum fyrir hvert félag. Staða forstjóra og stjórnarformanns reiknast inn í meðaleinkunn fyrirtækis þegar það er kona sem gegnir stöðunni, annars ekki. Að því leyti má segja að kvarðinn mæli raunveruleg áhrif kvenna á mörkuðum.

Gemmaq er nýsköpunarfyrirtæki sem Freyja Þórarinsdóttir stofnaði árið 2015 þegar hún var nemi í Columbia háskólanum í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur meðal annars hlotið styrk frá velferðarráðuneytinu fyrir þróun á mælikvörðum um jafnrétti. Markmið fyrirtækisins er að safna upplýsingum fyrir markaðsaðila um kynjahlutföll hjá skráðum fyrirtækjum og hjálpa þannig til við að útrýma kynbundnu valdaójafnrétti.

Nánari upplýsingar um greiningar Gemmaq

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira