05.09.2018

Arion banki fær verð­laun fyrir besta ný­sköp­unar­hraðal­inn

Við hjá Arion banka höfum einsett okkur að vera fremst í stafrænni bankaþjónustu hér á landi og aðferðafræðin sem við notum til þess að þróa stafrænar vörur og þjónustu köllum við stafræna framtíð. Arion banki hlaut nýverið fyrstu verðlaun BAI Global Innovation Awards fyrir þessa aðferðafræði þar sem keppt var um besta nýsköpunarhraðalinn.

BAI Global Innovation eru óháð samtök sem bjóða meðal annars upp á greiningar og rannsóknir í fjármálageiranum. Verðlaun á vegum samtakanna hafa verið veitt frá árinu 2011.

Bankinn var einnig tilnefndur í flokknum People's choice fyrir rafrænt íbúðalánaferli bankans en ferlið hefur tekið stakkaskiptum með stafrænum lausnum. Sem dæmi um meiri þægindi tekur aðeins um þrjár mínútur að fara í gegnum greiðslumat og er það ferli með öllu pappírslaust. Hægt er að kjósa hér. Tilkynnt verður um vinningshafa þann 10. október.

Markmið okkar með stafrænni framtíð er að auka aðgengi að stafrænum vörum og þjónustu bankans og þannig veita viðskiptavinum okkar þægilegri bankaþjónustu, hvar og hvenær sem er. Unnið er að því að sjálfvirknivæða og einfalda verklag þannig að í öllum ferlum verði sem fæst handtök, bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira