29.04.2019

Arion banki fékk viður­kenningu fyrir nýtt út­lit

Keppni Félags íslenskra teiknara, FÍT, er haldin árlega og þar er keppt um það besta í grafískri hönnun og myndskreytingum á Íslandi.

Í ár var Arion banki tilnefndur til verðlauna fyrir nýtt útlit bankans í flokknum Mörkun ársins ásamt þremur öðrum verkefnum en innsendar tillögur voru yfir 60 talsins. Nýtt útlit Arion banka á vefsíðu og öðru markaðsefni fékk sérstaka viðurkenningu í flokknum en veitt voru ein verðlaun og tvær viðurkenningar.

Dómnefnd hafði þetta um verkefni Arion banka að segja:

„Umfangsmikil og vel heppnuð endurmörkun sem leysir þarfir bankans í flóknu og margslungnu umhverfi viðskiptavina. Sterk einkenni skapast með litanotkun og myndlýsingum sem halda utan um heildarútlitið.“

Það má með sanni segja að nýtt útlit Arion banka veki víða jákvæða athygli enda stutt síðan bankinn var valinn markaðsfyrirtæki ársins af ÍMARK.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira