28.10.2022

Arion banki fjár­festir í Frá­gangi

Arion banki er kominn í hóp hluthafa Frágangs og gengur þar til liðs við stofnendur félagsins. Frágangur er nýsköpunarfyrirtæki sem var stofnað árið 2020 en markmið þess er að gera ökutækjaviðskipti alveg rafræn frá a til ö. Rafræn lausn Frágangs gerir öllum þeim sem kjósa að sjá sjálfir um kaup og/eða sölu á ökutæki kleift að eiga örugg, einföld og hröð viðskipti. Lausnin felur í sér alla skjalagerð sem tengist viðskiptunum, þar á meðal kaupsamninga, eigendaskipti, fjármögnun og tryggingar.

Arion banki hefur nú eignast þriðjung í félaginu með það að markmiði að styðja við frekari þróun og vöxt félagsins. Fjárfestingin er liður í áherslu bankans á að styðja við nýsköpunarfyrirtæki sem nýta rafrænar lausnir til að einfalda viðskipti, fjármál og tryggingar.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Við hjá Arion banka höfum brennandi áhuga á að einfalda fólki lífið varðandi fjármál og viðskipti. Þess vegna höfum við fjárfest mikið í Arion appinu en það hefur verið valið besta bankaappið á Íslandi sex ár í röð af viðskiptavinum bankanna í könnun MMR. Við höfum einnig fjárfest í spennandi fjártæknifélögum sem deila þessum áhuga; fyrirtækjum eins og Leiguskjóli, sem er orðið miðpunktur leigumarkaðarins hér á landi, og nú Frágangi sem einfaldar öllum þeim lífið sem vilja sjá sjálfir um ökutækjaviðskipti. Við sjáum að Frágangur er nú þegar orðinn mikilvægur innviður fyrir bílaviðskipti og hlökkum til að vinna með félaginu í áframhaldandi þróun.“

Helgi Pjetur, framkvæmdastjóri Frágangs:

„Ég er mjög ánægður með innkomu Arion banka í hluthafahóp Frágangs. Þessi fjárfesting mun gera okkur kleift að þróa lausnina okkar enn hraðar og hefja frekari markaðssókn hér á Íslandi. Við munum einnig njóta góðs af mikilli reynslu starfsfólks Arion þegar kemur að ökutækjafjármögnun og öðrum ferlum tengdum ökutækjaviðskiptum almennt.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira