29.09.2017

Arion banki fjármagnar HS Orku og Brú­ar­virkj­un

Nýverið skrifuðu Arion banki og HS Orka undir samning sem snýr að heildarfjármögnun HS Orku. Um er að ræða lánsfjársamning sem meðal annars mun nýtast til uppbyggingar Brúarvirkjunar í Biskupstungum sem er allt að 9,9 MW rennslisvirkjun. Auk þess mun fjármögnunin nýtast til frekari þróunar verkefna sem tengjast Reykjanesvirkjun og uppgreiðslu eldri lána félagsins.

Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku:

„Við erum mjög ánægð með að hefja samstarf með Arion banka á þessum tímapunkti. Það eru mörg spennandi verkefni framundan hjá HS Orku og traustir samstarfsaðilar sem hafa skilning á því umhverfi sem við vinnum í eru afar mikilvægir. Við vonumst til þess að þetta samstarf muni vera til hagsbóta fyrir bæði fyrirtækin til lengri tíma“.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„HS Orka er rótgróið og leiðandi félag hér á landi þegar kemur að framleiðslu á endurnýjanlegri orku. Það er okkur hjá Arion banka mikil ánægja að ganga til samstarfs við félagið með afgerandi hætti og taka að okkur fjármögnun þeirra verkefna sem eru framundan hjá félaginu.“

Um HS Orku

HS Orka er þriðja stærsta raforkufyrirtæki landsins og það eina sem er ekki í opinberri eigu. Fyrirtækið var stofnað í lok árs 1974 og rekur í dag tvær jarðvarmavirkjanir, í Svartsengi og á Reykjanesi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira