19.04.2016

Arion banki gef­ur út skulda­bréf í evr­um

Arion banki hefur gefið út skuldabréf að upphæð 300 milljónir evra eða sem nemur um 42 milljörðum íslenskra króna. Í heild bárust tilboð frá yfir 70 fjárfestum fyrir rúmlega 500 milljónir evra. Skuldabréfin eru til þriggja ára og bera fasta 2,5% vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 2,70% álagi á millibankavexti. Um er að ræða aðra útgáfu Arion banka í evrum sem seld er til breiðs hóps fjárfesta.

Það voru Barclays, JP Morgan og Nomura sem sáu um útgáfuna í kjölfar þriggja daga fundaraðar með evrópskum fjárfestum. Uppgjör Arion banka á síðasta ári var gott og aðstæður á lánsfjármörkuðum hafa undanfarið þróast með hagstæðum hætti, því voru til staðar aðstæður til skuldabréfaútgáfu af þessari stærðargráðu.

Til stendur að nýta hluta lánsins til að greiða niður eldri lán. Einnig munu fyrirtæki í viðskiptum við bankann, sem þörf hafa fyrir erlenda fjármögnun, njóta góðs af auknu aðgengi að erlendu lánsfé.

Skuldabréfaútgáfan nú kemur í framhaldi af vinnu undanfarinna ára við að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans. Í mars 2015 varð Arion banki fyrstur íslenskra banka um langt skeið til að gefa út skuldabréf í evrum til breiðs hóps fjárfesta. Arion banki er með lánshæfismatið BBB-, með jákvæðum horfum, frá Standard & Poor´s.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Við höfum unnið markvisst að því á undanförnum árum að kynna Arion banka og stöðu íslensks efnahagslífs fyrir erlendum fjárfestum með það að markmiði að bæta aðgengi að lánsfjármörkuðum. Það hefur gengið vel enda hefur þróunin verið góð hjá bankanum sem og í efnahagslífinu. Það er því ánægjulegt að nú í annað sinn höfum við gefið út skuldabréf í evrum til breiðs hóps fjárfesta. Okkar viðskiptavinir sem hafa þörf fyrir erlenda fjármögnun munu njóta góðs af en þetta skiptir einnig máli fyrir efnahagslífið hér á landi þar sem útgáfan nú staðfestir enn frekar aðgengi íslenskra fjármálafyrirtækja að alþjóðlegum lánsfjármörkuðum á batnandi kjörum.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira