20.06.2017

Arion banki gef­ur út skulda­bréf í evr­um

Arion banki gaf í dag út skuldabréf til þriggja ára að upphæð 300 milljónir evra eða sem nemur rúmum 34 milljörðum íslenskra króna. Í heild bárust tilboð frá 80 fjárfestum fyrir rúmlega 750 milljónir evra og var umframeftirspurn því ríflega tvöföld.

Skuldabréfin bera fasta 0,75% vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 0,88% álagi á millibankavexti. Goldman Sachs, JPMorgan, Nomura og UBS sáu um útgáfuna fyrir hönd bankans. Sem fyrr verður hluti útgáfunnar nýttur til að greiða niður eldri lán.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Arion banki er nú orðinn reglulegur útgefandi á erlendum skuldabréfamarkaði og aukinn fjöldi þátttakenda í útiboðinu ber mark um að bankinn sé orðinn þekktur meðal fjárfesta. Það er afar ánægjulegt að sjá kjör Arion banka á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum halda áfram að batna því bætt kjör sýna aukinn áhuga á bankanum og staðfesta vaxandi traust til okkar. Þessi jákvæða þróun skiptir okkur og viðskiptavini okkar miklu og eflir samkeppnisstöðu bankans.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira