24.11.2016

Arion banki gef­ur út skulda­bréf í evr­um

Arion banki gaf í dag út skuldabréf til fimm ára að upphæð 300 milljónir evra eða sem nemur um 36 milljörðum íslenskra króna. Í heild bárust tilboð frá yfir 50 fjárfestum fyrir rúmlega 400 milljónir evra. Skuldabréfin bera fasta 1,625% vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 1,65% álagi á millibankavexti. Barclays, Citi, Deutsche Bank og Morgan Stanley sem sáu um útgáfuna fyrir hönd bankans.

Um er að ræða þriðju útgáfu Arion banka í evrum og er hún seld til breiðs hóps fjárfesta en til stendur að nýta hluta lánsins til að greiða niður eldri lán.

Skuldabréfaútgáfan nú kemur í framhaldi af vinnu undanfarinna ára við að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans og nýlegri hækkun á lánshæfismati. Arion banki er með lánshæfiseinkunnina BBB, með jákvæðum horfum, frá Standard & Poor´s.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Við sjáum að kjör Arion banka á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum batna stöðugt. Það skiptir okkur og viðskiptavini okkar miklu. Bætt kjör endurspegla aukið traust til bankans og efla samkeppnisstöðu okkar.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira