15.11.2018

Arion banki gef­ur út víkj­andi skulda­bréf í sænsk­um krón­um

Arion banki gaf í dag út skuldabréf eiginfjárþáttar 2 að fjárhæð 500 milljónir sænskra króna. Skuldabréfin, sem eru fyrsta víkjandi útgáfa Arion banka, eru með fljótandi vexti 310 punkta ofan á millibankavexti í sænskum krónum. Skuldabréfin eru gefin út til 10 ára með innköllunarheimild af hálfu útgefanda eftir 5 ár (10NC5).

Skuldabréfin teljast til eiginfjárþáttar 2 samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Útgáfa skuldabréfanna styrkir eiginfjárgrunn bankans og er áfangi í vegferð hans að ná fram hagkvæmri skipan eiginfjár.

Gert er ráð fyrir að útgáfan fái lánshæfiseinkunnina BBB- frá S&P Global Ratings. Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta í kauphöllinni í Lúxemborg þann 22 nóvember 2018.

Nordea, Swedbank og SEB sáu um útgáfuna fyrir hönd bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira