20.10.2025

Arion banki ger­ir hlé á veit­ingu verð­tryggðra íbúða­lána

Hæstiréttur kvað nýverið upp dóm í máli sem höfðað var gegn Íslandsbanka þar sem skilmálar óverðtryggðs láns, sem kveða á um heimildir til að breyta vöxtum, voru að hluta til dæmdir ólögmætir. Niðurstaða dómsins felur í sér að heimilt er að breyta vöxtum sambærilegra lána í takt við breytingar á stýrivöxtum Seðlabanka Íslands.

Óvissa hvað varðar lögmæti skilmála verðtryggðra lána

Skilmálar íbúðalána Arion banka með breytilega vexti eru frábrugðnir þeim sem fjallað var um í dómi Hæstaréttar. Mál sem snýr að láni Arion banka með breytilegum verðtryggðum vöxtum bíður málflutnings fyrir Hæstarétti en Landsréttur dæmdi bankanum í vil í febrúar síðastliðnum. Enn fremur vísa vaxtabreytingarskilmálar lána Arion banka með verðtryggðum vöxtum eðli málsins samkvæmt ekki til stýrivaxta Seðlabankans. Því er enn óvissa hvað varðar lögmæti skilmála verðtryggðra lána sem kveða á um breytingar á vöxtum.

Af þeim sökum gerir Arion banki hlé á veitingu verðtryggðra lána, hvort sem þau eru með breytilegum eða föstum vöxtum. Við metum nú hvort hægt sé að bjóða bráðabirgðalausn þar til óvissu um lögmæti skilmálanna hefur verið eytt.

Óverðtryggð lán áfram í boði – kynntu þér greiðslufestu

Áfram verða óverðtryggð íbúðalán í boði. Jafnframt býður Arion banki viðskiptavinum sem kjósa óverðtryggð lán en vilja lækka greiðslubyrði upp á greiðslufestu. Þegar greiðslufesta er sett á óverðtryggt lán þá er föst fjárhæð greidd í tólf mánuði, sem er lægri en mánaðarleg greiðsla samkvæmt skilmálum lánsins. Mismunurinn er lagður við höfuðstól lánsins, sem leiðir til hækkunar lánsins. Hægt er að velja hvort fasta mánaðarlega greiðslan miðist við 1, 2, 3 eða 4% lægri vexti en lánið ber í dag. Nánar má lesa um greiðslufestu hér.

Hafðu samband

Við bendum öllum þeim sem eru í fasteignahugleiðingum að setja sig í samband við okkur, í síma 444 7000, á ibudalan@arionbanki.is eða í gegnum netspjallið á vefsíðu okkar til að ræða þá kosti sem í boði eru.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira