20.06.2017

Arion banki ger­ir sátt við Sam­keppnis­eftir­lit­ið til að efla sam­keppni

Arion banki hefur gert sátt við Samkeppniseftirlitið sem snýr að viðskiptabankaþjónustu til einstaklinga og lítilla fyrirtækja. Markmið sáttarinnar er að draga úr kostnaði sem fylgir því að skipta um banka, stuðla að virkara samkeppnisaðhaldi og vinna gegn aðstæðum sem rennt gætu stoðum undir þögla samhæfingu. Sáttin tekur bæði til aðgerða sem bankinn mun ráðast í og verklags sem þegar er viðhaft sem bankinn skuldbindur sig til að ástunda áfram til að efla samkeppni á viðskiptabankamarkaði.

Arion banki hefur á undanförnum mánuðum kynnt fjölda nýrra stafrænna lausna sem einmitt miða að því að gera bankaviðskipti einfaldari og þægilegri fyrir viðskiptavini. Meðal þeirra lausna er afar einföld og þægileg lausn á vef bankans fyrir einstaklinga og fyrirtæki til að skipta um banka og stofna til viðskipta við Arion banka.

Helstu atriði sem sáttin tekur til og varða einstaklinga og lítil fyrirtæki:

  • Arion banki mun ekki innheimta uppgreiðslugjöld vegna lána sem bera breytilega vexti.

  • Viðskiptavinir með lán sem bera fasta vexti til nokkurra ára, t.d. fimm ára, munu áfram geta greitt upp lán við skilmálabundna endurskoðun vaxta án uppgreiðslugjalds.

  • Við flutning séreignasparnaðar úr stýringu frá bankanum skuldbindur bankinn sig til að takmarka sinn hlut í þóknun vegna færslunnar.

  • Arion banki mun áfram viðhafa það verklag við ný og eldri íbúðalán sem og við yfirtöku íbúðalána að gera ekki kröfu um að kaupandi færi önnur bankaviðskipti til bankans.

  • Arion banki mun auðvelda viðskiptavinum að færa viðskipti sín annað. Jafnframt mun bankinn gera kannanir á tveggja ára fresti til að leita viðhorfa viðskiptavina um atriði sem þeir telja að hindri þá í að flytja sín bankaviðskipti.

  • Arion banki mun upplýsa viðskiptavini skilmerkilega um íþyngjandi breytingar á vöxtum og verðskrá.

  • Arion banki mun gera allar upplýsingar um almennar þóknanir, kjör og skilmála, sem eru opinberlega birtar á vefsíðu bankans, aðgengilegar gegnum opið API-viðmót og þannig gera þriðja aðila kleift að birta kjör allra viðskiptabanka til að auðvelda verðsamanburð.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira