04.05.2016

Arion banki greið­ir niður skulda­bréf um 31 millj­arð króna

Þann 6. maí mun Arion banki greiða niður skuldabréf um 252.697.000 Bandaríkjadali, auk áfallinna vaxta, eða sem nemur um 31 milljarði íslenskra króna. Skuldabréfið nam 747.481.000 Bandaríkjadölum (97 milljarðar kr.) þegar það var gefið út í upphafi árs. Skuldabréfið er í eigu Kaupþings og var útgáfa þess liður í aðgerðum sem snéru að afnámi fjármagnshafta.

Greiðslan er í samræmi við ákvæði skuldabréfsins sem kveða á um að Arion banki skuli greiða inn á bréfið gefi bankinn út skuldabréf í erlendri mynt eins og gert var þann 26. apríl þegar Arion banki gaf út skuldabréf að upphæð 300 milljónir evra.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira