14.10.2016

Arion banki hættir með auð­kennislykla

Auðkennislykillinn sem hefur gagnast vel í rúm tíu ár mun nú renna sitt skeið á enda. Þann 1. mars næstkomandi verður ekki lengur hægt að skrá sig inn með auðkennislykli í netbanka Arion banka og Arion appið. Tvær leiðir til innskráningar verða í boði:

  • Rafræn skilríki

  • SMS innskráning

Arion banki tekur ekki gjald fyrir innskráningar.

Rafræn skilríki í farsíma eru einföld og örugg leið til auðkenningar og undirritunar á netinu en þau jafngilda undirskrift og framvísun persónuskilríkja. Ef SIM kortið þitt uppfyllir kröfur rafrænna skilríkja getur þjónusturáðgjafi í næsta útibúi Arion banka virkjað þau gegn framvísun ökuskírteinis eða vegabréfs.

Hér getur þú prófað hvort SIM-kortið þitt uppfyllir kröfurnar.

SMS auðkenning er hentug innskráningarleið. Þú getur skráð farsímanúmer í netbankanum undir Stillingar en hægt er að notast við innlend og erlend farsímanúmer.

Hér getur þú nálgast frekari upplýsingar um SMS auðkenningu.

Við hvetjum þig til að virkja hið minnsta aðra innskráningarleiðina svo þú sért viðbúin/n þessari breytingu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira