21.03.2017

Arion banki hættir notkun auð­kennislykla

Eins og áður hefur verið tilkynnt rennur auðkennislykillinn nú sitt skeið á enda en frá og með 6. apríl verður ekki hægt að nota auðkennislykil við innskráningu í Netbanka Arion banka og Arion appið.

Eftir þessa breytingu verða þrjár innskráningaleiðir í boði:

Rafræn skilríki

Rafræn skilríki eru einföld og örugg leið til auðkenningar og undirritunar í rafrænum heimi. Þau eru virkjuð í útibúum Arion banka um allt land.
Nánar um rafræn skilríki

SMS auðkenning

SMS auðkenning er hentug innskráningarleið fyrir þá sem kjósa að nota ekki rafræn skilríki. SMS auðkenningu er hægt að nota á innlend og erlend farsímanúmer.
Nánar um SMS auðkenningu

App auðkenning

App auðkenningin er óháð símasambandi og hentar því m.a. þeim sem nota netbankann þar sem ekki er símasamband. App auðkenning gerir notendum kleift að auðkenna sig í netbanka og Arion appinu með auðkennisnúmeri úr auðkenningarappi snjalltækis.
Nánar um app auðkenningu

Arion banki tekur ekki gjald fyrir innskráningar í netbanka, óháð auðkenningarleið.

Sem fyrr hvetur Arion banki sérstaklega til notkunar á rafrænum skilríkjum. Þau eru þægileg í notkun og veita aðgang að fjölbreyttri rafrænni þjónustu á einfaldan og öruggan hátt hjá yfir 200 innlendum þjónustuaðilum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira