29.05.2017

Arion banki hluti af nýrri Ólymp­íu­fjöl­skyldu ÍSÍ

Arion banki er nýr bakhjarl Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og þar með hluti af Ólympíufjölskyldu ÍSÍ.

Samstarfssamningur þess efnis var undirritaður mánudaginn 22. maí af þeim Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra Arion banka, Lárusi L. Blöndal, forseta ÍSÍ, og Líneyju Rut Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra ÍSÍ. Á sama tíma voru undirritaðir samstarfssamningar ÍSÍ og annarra styrktaraðila en auk Arion banka eru það Icelandair, Sjóvá, Toyota og Valitor sem skipa Ólympíufjölskyldu ÍSÍ 2017-2020.

Til margra ára hefur Ólympíufjölskyldan stutt dyggilega við bakið á ÍSÍ og íslenskri íþróttahreyfingu, með það að markmiði að efla íslenskt íþróttalíf og þátttöku Íslands á erlendum vettvangi. Verkefni ÍSÍ eru fjölmörg en þar má m.a. nefna þátttöku 136 íslenskra keppenda á smáþjóðaleikunum í San Marínó sem hófust í dag og standa til 3. júní.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira