17.07.2020

Arion banki hyggst skjóta ákvörð­un FME til dóm­stóla

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME) hefur ákveðið að sekta Arion banka um 87,7 milljónir króna á grundvelli þess að bankinn hafi ekki birt innherjaupplýsingar nægjanlega tímalega. Arion banki hyggst höfða mál til ógildingar ákvörðunarinnar.

Málavextir eru þeir að snemma í september 2019 tilkynnti bankinn FME að innan bankans væru til staðar innherjaupplýsingar og að bankinn myndi nýta heimild í lögum til að fresta birtingu þeirra. Upplýsingarnar snéru að skipulagsbreytingum innan bankans og þá einkum fjárhagslegum áhrifum þeirra. Eitt af skilyrðum frestunar er að bankinn geti tryggt trúnað um innherjaupplýsingarnar.

Þann 22. september 2019 birtist umfjöllun á vefmiðlinum mannlif.is þar sem fullyrt var að skipulagsbreytingar stæðu fyrir dyrum hjá Arion banka. Bar bankanum á þeim tímapunkti að meta hvort um brot á trúnaði væri að ræða. Þar sem umfjöllun vefmiðilsins hafði að geyma veigamikið misræmi frá þeim upplýsingum sem bankinn bjó yfir og þar var ekki að finna upplýsingar um fjárhagsleg áhrif aðgerðanna var það mat bankans að enn ríkti trúnaður um fyrirhugaðar aðgerðir. Taldi bankinn að umfjöllun vefmiðilsins fæli í sér getgátur byggðar á þegar birtum upplýsingum en haustið 2019 hafði ítrekað birst umfjöllun í fjölmiðlum um að vænta mætti breytinga og hagræðingar í rekstri bankans. Af þessu leiddi að skilyrði fyrir frestun á birtingu innherjaupplýsinga voru enn uppfyllt að mati bankans.

FME er ósammála skilningi bankans og sektar því Arion banka á grundvelli þess að bankinn hafi ekki birt innherjaupplýsingar nægjanlega tímalega. FME bauð Arion banka að gera sátt í málinu sem bankinn hafnaði þar sem hann telur sig hafa farið að lögum. Í ákvörðun FME segir ennfremur að við ákvörðun sektarfjárhæðar hafi verið litið til fyrri sekta bankans en Arion banki hefur þó aldrei áður hlotið áminningu eða sekt vegna upplýsingagjafar í kauphöll.

Sem fyrr segir hyggst Arion banki höfða mál til ógildingar á ákvörðun FME en heimildir útgefanda til frestunar á birtingu innherjaupplýsinga eru matskennt lögfræðilegt álitaefni sem ekki hefur áður reynt á fyrir íslenskum dómstólum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira