29.05.2020
Arion banki lækkar vexti
Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast þann 1. júní næstkomandi. Vaxtabreytingarnar nú fela í sér umtalsvert meiri lækkun á vöxtum útlána bankans en innlánum, viðskiptavinum til hagsbóta. Breytilegir óverðtryggðir íbúðalánavextir lækka um 0,50% og hafa þá lækkað um 3,06% frá byrjun árs 2019 og hafa óverðtryggðir breytilegir vextir Arion banka lækkað mest á markaði.
Fjármögnun banka er fjölbreytt og samanstendur t.d. af innlánum viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlendri skuldabréfaútgáfu og eiginfjárgerningum. Fjármögnunin fylgir því ekki nema að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans og speglast vaxtaákvarðanir Seðlabankans því ekki með beinum hætti í vaxtakjörum banka. Arion banki hefur aftur á móti lagt sig fram um að skila vaxtaákvörðunum Seðlabankans sem best til viðskiptavina sinna og var að auki fyrstur banka til að lækka vexti vegna lækkunar bankaskatts.
Helstu breytingar sem taka gildi 1. júní eru eftirfarandi:
Óverðtryggð íbúðalán
Óverðtryggðir breytilegir vextir lækka um 0,50% og verða 3,54%
Fastir 5 ára vextir lækka um 0,60% og verða 4,49%
Verðtryggð íbúðalán
Verðtryggðir breytilegir vextir lækka um 0,30% og verða 2,74%
Fastir 5 ára vextir lækka um 0,10% og verða 2,54%
Bílalán
Vextir bílalána lækka um allt að 0,60%
Kjörvextir
Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,40%
Almennir verðtryggðir kjörvextir lækka um 0,20%
Annað
Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga lækka um allt að 0,75%
Innlán
Breytilegir innlánavextir bankans munu í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05% - 0,75%