06.02.2020

Arion banki með mestu hluta­bréfa­velt­una í janú­ar

Arion banki hf. var með mestu hlutdeildina á hlutabréfamarkaði í janúarmánuði. Bankinn velti rúmum 34 milljörðum króna á hlutabréfamarkaði sem samsvarar 24% hlutdeild. Arion banki hefur verið stærstur á hlutabréfamarkaði undanfarin fjögur ár en veltan í janúar er mesta velta bankans á einum mánuði síðan vorið 2017.

Velta með hlutabréf á aðalmarkaði Nasdaq Iceland nam 142,5 ma.kr. í janúar en mesta veltan var að venju með Marel eða 17,4% af heildarveltunni. Arion banki átti mestu veltuna með Marel eða rúmlega fjórðung. Auk þess átti Arion banki mestu veltuna með Festi, Haga, TM, VÍS, Sjóvá, Símann og Icelandic Seafood.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira