07.01.2020

Arion banki með mestu hlut­deild á hluta­bréfa­markaði fjórða ár­ið í röð

Arion banki var með mestu hlutdeildina á hlutabréfamarkaði árið 2019. Bankinn velti rétt tæpum 248 milljörðum króna á hlutabréfamarkaði sem samsvarar 20,5% hlutdeild en þetta er jafnframt fjórða árið í röð sem bankinn er stærstur á hlutabréfamarkaði.

Á árinu 2019 fóru umtalsverð viðskipti með hlutabréf í Marel í gegnum Arion banka en velta bankans með bréf í Marel nam 59 milljörðum króna sem er fjórðungur allra viðskipta með Marel í Kauphöllinni. Auk þess var Arion banki með mestu veltuna í Högum, Festi, Heimavöllum, Reitum, Sjóvá og Vís.

Arion banki velti 432 milljörðum króna á skuldabréfamarkaði í fyrra sem var þriðja mesta veltan á árinu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira