17.12.2019

Arion banki og Fjármála­eftir­lit­ið gera sam­komulag um að ljúka máli með sátt

Fjármálaeftirlitið tilkynnti Arion banka í apríl 2018 að það hefði til skoðunar meðferð bankans á hagsmunaárekstrum í tengslum við aðkomu bankans að fjármögnun kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík. Þeirri skoðun er nú lokið með sátt þar sem Arion banki viðurkennir að láðst hafi að skrá með skipulegum og formlegum hætti innan bankans greiningu hagsmunaárekstra í tengslum við kaup lífeyrissjóða á skuldabréfum á árinu 2015 og þátttöku þeirra í hlutafjárhækkunum Sameinaðs Sílikons hf. á árunum 2016 og 2017. Heimilt er að ljúka málum sem þessum með sátt, enda er ekki um að ræða meiri háttar brot og fellst Arion banki á að greiða sekt að fjárhæð 21 milljón króna.

Arion banki gegndi fjölþættu hlutverki við öflun fjármagns til uppbyggingar verksmiðjunnar sem óhjákvæmilega fól í sér hagsmunaárekstra. Bankinn upplýsti viðskiptavini sína um þessi tengsl og gætti þess að til staðar væru viðeigandi mótvægisaðgerðir til að koma í veg fyrir að hagsmunaárekstrar myndu skaða hagsmuni viðskiptavina. Hvorki voru gerðar athugasemdir við greiningu hagsmunaárekstra né mótvægisaðgerðir bankans en líkt og segir í sáttinni, láðist að skjala greiningu á hagsmunaárekstrum og hefur bankinn þegar brugðist við þessari yfirsjón og bætt innri skráningu hagsmunaárekstra.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira