29.10.2026
Arion banki og Kardio í samstarf
Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki.
Kardio er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki í örum vexti sem býður fyrirtækjum lausnir til að halda utan um útgjöld þeirra á einum stað: greiðslukort, innkaupareikninga og útlagðan kostnað, auk fleiri lausna sem bætast við á næstunni.
Með Kardio geta fyrirtæki meðal annars stofnað greiðslukort á nokkrum sekúndum, stýrt heimildum starfsmanna og fylgst með útgjöldum í rauntíma. Gervigreind sér jafnframt um stóran hluta þeirrar handvirku vinnu sem fylgir reikningum, kvittunum og bókhaldi.
Lausnin auðveldar fjármálastjórum alls kyns utanumhald. Ef starfsmaður þarf til dæmis að kaupa hugbúnaðaráskrift getur stjórnandi stofnað fyrir hann stafrænt kort á nokkrum sekúndum og ákveðið heimild þess fyrir fram. Þannig þarf starfsmaðurinn hvorki að fá lánað fyrirtækjakort né leggja út fyrir kostnaðinum sjálfur. Upplýsingar vegna bókhalds fylgja jafnframt færslunni frá upphafi og draga þannig úr allri eftirvinnslu.
Nú er unnið hörðum höndum að því samþætta lausnir Kardio og Arion og er gert ráð fyrir að þjónustan verði í boði með kortum Arion banka í byrjun árs 2027.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:
„Á síðustu árum höfum við unnið markvisst að því að auðvelda fyrirtækjum að sinna daglegum fjármálum og nýtt tæknina til að einfalda ýmsa ferla sem áður gátu verið tímafrekir. Samstarfið við Kardio er rökrétt framhald á þeirri vegferð. Við rýndum í markaðinn og komumst að þeirri niðurstöðu að lausn Kardio væri sú flottasta sem er í boði í dag hvað útgjaldastýringu varðar. Við erum með þá stefnu að vinna með öflugum fjártæknifyrirtækjum – þar er gróskan og krafturinn sem við viljum vera með í að virkja – og erum því mjög spennt fyrir framhaldinu.“
Arnar Jónsson, framkvæmdastjóri Kardio:
„Við viljum gera útgjaldastýringu fyrirtækja eins gagnsæja og sjálfvirka og hægt er. Samstarfið við Arion er mikilvægt skref fyrir Kardio, þar sem reynsla bankans og sérhæfing Kardio vinnur saman. Við völdum að vinna með Arion vegna þess að bankinn hefur bæði burðina og viljann til að þróa þjónustu sína á þeim hraða sem fyrirtæki gera kröfu um í dag. Við erum rétt að byrja og hlökkum til að sjá fleiri fyrirtæki ná betri tökum á útgjöldunum.“
Við undirritun samningsins. Frá vinstri: Viktor Sævarsson, Gunnar Helgi Gunnsteinsson, Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, Arnar Jónsson, Guðberg Sumarliðason, Jón Dal Kristbjörnsson og Margrét Sveinsdóttir á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion.