12.01.2016

Arion banki og Kaupþing ljúka samningum um fjármögnun

Arion banki hf. hefur undirritað samninga við Kaupþing ehf. sem kveða á um útgáfu Arion banka á skuldabréfi að fjárhæð $747.481.000, eða um 97 milljarðar króna. Skuldabréfið er gefið út innan EMTN-fjármögnunarramma Arion banka og er til sjö ára, en er uppgreiðanlegt á vaxtagjalddögum fyrstu tvö árin. Skuldabréfið ber fljótandi LIBOR vexti að viðbættu 2,6% álagi fyrstu tvö árin og mun vaxtaálagið að þeim tíma liðnum taka mið af markaðskjörum.

Skuldabréfið kemur til skuldajöfnunar á láni í erlendum myntum, sem Arion banki var áður með hjá Seðlabanka Íslands en er nú í eigu Kaupþings, og innlána Kaupþings hjá Arion banka í erlendum myntum.

Útgáfa skuldabréfsins er liður í aðgerðum sem snúa að Kaupþingi og miða að afnámi fjármagnshafta og tilkynnt var um af Fjármála- og efnahagsráðuneytinu 8. júní 2015.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira