28.06.2019

Arion banki og Kol­viður gera samning um kol­efnis­jöfn­un

Arion banki og Kolviður hafa gert samning sín á milli um bindingu þeirrar kolefnislosunar sem hlýst af starfsemi bankans. Kolviður mun binda kolefni í gróðri og jarðvegi með landgræðslu og skógrækt á móti þeirri kolefnislosun sem á sér stað í rekstri bankans á árinu. Áætlað er að Kolviður muni gróðursetja allt að 5.000 tré fyrir þetta rekstrarár bankans. Um er að ræða losun m.a. vegna bifreiða í rekstri bankans, sorps og flugsamgangna. Kolefnisjöfnun á daglegum rekstri bankans er liður í vegferð bankans í umhverfismálum.

Árið 2015 undirritaði Arion banki loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar og síðan þá hefur verið unnið að því að kortleggja umhverfisáhrif af starfseminni í samstarfi við nýsköpunarfyrirtækið Klappir grænar lausnir. Gripið hefur verið til ýmissa aðgerða í umhverfismálum bankans eins og að rafvæða hluta bílaflotans, draga úr plastnotkun í starfseminni, flokka úrgang og draga úr allri sóun ásamt því að fræða starfsfólk um þessi mikilvægu mál. Þá hafa samgöngustyrkir verið veittir starfsfólki sem velur sér vistvæna kosti til og frá vinnu frá árinu 2012, auk þess sem bankinn býður viðskiptavinum sínum 50% afslátt af lántökugjöldum við fjármögnun vistvænna bíla.

Stefán Pétursson, starfandi bankastjóri Arion banka:

„Með því að kolefnisjafna starfsemi Arion banka horfum við til framtíðar. Kolefnisjöfnun með skógrækt og landgræðslu er engin skyndilausn á þeim loftslagsvanda sem heimurinn stendur frammi fyrir heldur tekur það áratugi að kolefnisjafna hvert rekstrarár. Það er hins vegar mikilvægt að búa í haginn fyrir framtíðina og þar skiptir sérhvert jákvætt skref máli. Við hvetjum viðskiptavini okkar, samstarfsaðila og fyrirtækin í landinu til að gera slíkt hið sama.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira