09.10.2024

Arion banki og Lax­ey undir­rita sam­komulag um fjármögnun

Arion banki og Laxey hafa undirritað samning um fjármögnun. Samstarf félaganna mun styðja við áform Laxey um að starfrækja fiskeldisstöð á landi í Vestmannaeyjum.

Samkomulagið er mikilvægur þáttur í langtímarekstri Laxey og styður við áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins. Samstarfið undirstrikar skuldbindingu Laxey til uppbyggingar fiskeldis í Vestmannaeyjum með sjálfbærni- og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.

Rúnar Magni Jónsson, forstöðumaður á fyrirtækja- og fjárfestingabankasviði Arion banka: „Það er ánægjulegt að undirrita þetta samkomulag við Laxey og styðja þannig við uppbyggingu fiskeldis í Vestmannaeyjum. Arion banki hefur stutt við margvísleg verkefni á sviði fiskeldis víða um land sem nú er orðið mikilvæg atvinnugrein, ekki bara fyrir byggðir víða um land heldur einnig fyrir íslenskt efnahagslíf. Áform Laxey eru metnaðarfull og verður spennandi að fylgjast með þeirri uppbyggingu sem fram undan er.“

Lárus Ásgeirsson stjórnarformaður Laxey bætti við: „Samstarfið við Arion banka er stórt skref í átt að því að styrkja starfsemi okkar. Með stuðningi Arion banka getum við haldið áfram þeirri leið sem við erum á, byggt upp nýja atvinnugrein í Vestmannaeyjum og haldið áfram að leggja áherslu á umhverfisvænar eldisaðferðir.“

Laxey stefnir á byggingu fiskeldisstöðvar sem getur framleitt 32.000 tonn af laxi á ári. Laxey er með seiðastöð í rekstri í Friðarhöfn sem notast við RAS-kerfi sem hámarkar endurnýtingu á vatni og er fyrsta stöð sinnar tegundar á Íslandi. Áframeldið sem verður á landi mun notast við gegnumstreymiskerfi með um 65% endurnýtingu þar sem hreinum sjó er dælt upp í gegnum stöðina og hreinsaður áður en honum er skilað aftur til sjávar. Með þessu tryggir Laxey bestu skilyrði fyrir vöxt laxa með sjálfbærum hætti.

Samstarf Arion banka og Laxey kemur á tímum þegar fiskeldisiðnaðurinn á Íslandi er í mikilli sókn og styrkir ímynd Íslands sem leiðandi lands í framsæknu og umhverfisvænu fiskeldi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira