12.05.2020

Arion banki og Seðla­banki Ís­lands semja um veit­ingu viðbótar­lána

Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa skrifað undir samning um veitingu viðbótarlána til fyrirtækja. Viðbótarlánin sem njóta ríkisábyrgðar að hluta eru ætluð fyrirtækjum sem hafa orðið fyrir verulegu og ófyrirséðu tekjutapi vegna COVID-19.

Samkvæmt samningnum við Seðlabankann þurfa fyrirtæki að uppfylla ýmis skilyrði þannig að Arion banki geti veitt þeim lán með allt að 70% ábyrgð ríkissjóðs. Meðal helstu skilyrða er að ófyrirséð tekjutap vegna COVID-19 nemi að lágmarki 40% og að launakostnaður hafi verið a.m.k. 25% af heildarútgjöldum undangengins árs.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Við höfum unnið ötullega að því síðustu vikur að koma til móts við okkar viðskiptavini með margvíslegum hætti. Eitt helsta úrræðið fyrir fyrirtæki hefur snúið að því að koma þeim í greiðsluhlé og eru nú um 9% fyrirtækjalánasafns bankans í greiðsluhlé. Við horfum einnig til lánveitinga til að hjálpa fyrirtækjum að komast í gegnum þær krefjandi aðstæður sem nú eru uppi. Stuðningslánin sem stjórnvöld hafa kynnt geta gagnast minni fyrirtækjum og viðbótarlánin sem við höfum nú samið við Seðlabankann um eru valkostur fyrir meðalstór og stærri fyrirtæki sem uppfylla skilyrðin.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira