20.01.2026

Arion banki og Vörður opna í vor nýtt úti­bú í Reykja­nes­bæ

Á vormánuðum 2026 opna Arion banki og Vörður nýtt útibú í Reykjanesbæ. Núverandi starfsemi Varðar í Reykjanesbæ flyst í sameiginlegt húsnæði með Arion banka sem stendur á þróunarsvæði Aðaltorgs við Reykjanesbraut. Aðgengi við Aðaltorg er einstaklega gott fyrir íbúa Suðurnesja, beint frá stofnbraut, og næg bílastæði verða fyrir utan útibúið.

Um er að ræða svokallað kjarnaútibú þar sem verður að finna fjölbreytta fjármála- og tryggingaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Útibúið verður staðsett í þjónustukjarna á fyrstu hæð og gert er ráð fyrir að fjöldi starfsfólks verði um tólf manns til að byrja með. Ráðinn hefur verið svæðisstjóri, Einar Hannesson, og fyrir eru þrír starfsmenn Varðar í Reykjanesbæ. Störfin í Arion banka verða auglýst í janúar.

Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs og aðstoðarbankastjóri Arion banka:

„Opnunin markar viss tímamót hjá Arion banka því að við höfum ekki opnað nýtt útibú í langan tíma, svo að þetta er virkilega spennandi verkefni. Þá er mikil gróska á þessu svæði og við viljum styðja við uppbygginguna og kröftugt atvinnulíf á svæðinu. Það eru spennandi tímar fram undan í Reykjanesbæ.“

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar:

„Við erum full tilhlökkunar fyrir opnun nýja útibúsins á Aðaltorgi við Reykjanesbraut. Vörður á sér langa sögu í Reykjanesbæ, enda höfum við verið með útibú í þessu öfluga sveitarfélagi síðan 1999. Nú færum við okkur í rýmra húsnæði með Arion banka á frábærri staðsetningu, og getum því veitt enn betri alhliða fjármálaþjónustu til íbúa Reykjanesbæjar á einum stað. Við erum til staðar fyrir Reykjanesbæ og hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum í nýju húsnæði.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira