22.11.2019

Arion banki og Vörður tryggingar opna sam­an nýtt úti­bú á Gler­ár­torgi

Arion banki og Vörður tryggingar opna í sameiningu nýtt útibú á Glerártorgi á Akureyri. Nýja útibúið verður í góðum félagsskap tæplega 40 fjölbreyttra verslana, veitingastaða, lækna og tannlæknastofa í þessari stærstu verslunarmiðstöð landsins utan höfuðborgarsvæðisins.

Arion banki flytur af Geislagötu 5 og Vörður af Glerártorgi 34 í nýja útibúið á Glerártorgi þann 25. nóvember nk. Með flutningunum gefst kostur á að bjóða upp á þægilegri banka- og tryggingaþjónustu en áður, á stað sem er hjarta verslunar og þjónustu á Eyjafjarðarsvæðinu. Sjálfsafgreiðslusvæði útibúsins er opið allan sólarhringinn. Þar er í boði að taka út og leggja inn seðla, fylla á frelsi fyrir farsíma, skoða stöðu reikninga, greiða reikninga og taka út gjaldeyri.

Alhliða fjármálaþjónusta á einum stað

Samstarf Arion banka og Varðar tryggir að viðskiptavinir geta nálgast alhliða fjármálaþjónustu, ráðgjöf og kaup á tryggingum á einum stað til að spara sér sporin. Þeir sem vilja kynna sér hvað er í boði geta skoðað mögulegar þjónustuleiðir, þar með talið framboð trygginga í Arion appinu. Arion appið er öllum opið, óháð því hvar fólk er í viðskiptum. Í appinu er jafnframt hægt að ganga frá kaupum á tryggingum.

Í nýja útibúinu er veglegur viðburðarsalur þar sem reglulega verður efnt til fræðslufunda og annarra viðburða.

Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka:

„Við erum afar ánægð með að opna útibú á nýjum stað á Akureyri í samstarfi við Vörð og verða hluti af stærstu verslunar- og þjónustumiðstöð Norðurlands. Við erum sannfærð um að ný staðsetning henti viðskiptavinum okkar á Norðurlandi enn betur en Geislagatan þar sem við höfum verið um árabil. Í nýja útibúinu verður lögð áhersla á gott aðgengi að sjálfsafgreiðslulausnum en jafnframt boðið upp á þjónustu gjaldkera. Það felast spennandi tímamót í samstarfinu við Vörð þar sem viðskiptavinir á Norðurlandi geta nú sótt alhliða fjármálaþjónustu – banka- og tryggingaþjónustu – á einum stað. Sama gildir um Arion banka appið, en þar geta allir sinnt sínum fjármálum og óskað eftir tilboði í tryggingar frá Verði. Markmið okkar með samstarfinu við Vörð er að bæta enn frekar þjónustu bankans og gera hana þægilegri fyrir okkar viðskiptavini.“

Steinunn Hlíf Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafar og þjónustu Varðar:

„Við fögnum samstarfinu við Arion banka og hlökkum til að bjóða viðskiptavinum okkar á Norðurlandi trausta og öfluga þjónustu á nýjum stað. Áfram veitum við einfalda og þægilega þjónustu með áherslu á ráðgjöf enda starfsfólk okkar með mikla reynslu á sviði vátrygginga. Á tímamótum sem þessum er gaman að rifja upp að saga Varðar er samofin Eyjafjarðarsvæðinu. Hún nær til ársins 1926 þegar Vélbátasamtrygging Eyjafjarðar varð til en síðar var nafninu breytt í Vörð. Því er ánægjulegt að félagið sé enn að sækja fram á svæðinu þar sem saga þess hófst fyrir rúmum 90 árum.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira