05.12.2018

Arion banki opn­ar af­greiðslu við Haga­torg

Fimmtudaginn 6. desember kl. 9.00 opnar Arion banki afgreiðslu við Hagatorg eftir gagngerar endurbætur á húsnæði bankans. Afgreiðslan í Vesturbænum verður með svipuðu sniði og í Kringlunni og Garðabæ þar sem áhersla er lögð á þægilega og góða þjónustu sem og aðstoð og kennslu í stafrænum þjónustuleiðum bankans.

Flest öll hefðbundin bankaþjónusta verður aðgengileg við Hagatorg. Sem dæmi verður hægt að millifæra, greiða reikninga, leggja inn og taka út íslenskar krónur í hraðbönkunum. Með hjálp fjarfundarbúnaðar verður boðið upp á víðtækari þjónustu og fjármálaráðgjöf. Starfsfólk verður á staðnum frá 9-17 alla virka daga og hraðbankar verða opnir allan sólarhringinn.

Í tilefni opnunarinnar þann 6. desember verður boðið upp á rjúkandi kaffi og sæta bita frá kl. 9-17 og öll börn fá endurskinsmerki frá Sparilandi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira