21.09.2017

Arion banki opn­ar aft­ur í Kringl­unni eft­ir breyt­ingar - op­ið alla daga vik­unnar

Útibú Arion banka í Kringlunni opnaði á nýjan leik í morgun, fimmtudaginn 21. september, eftir gagngerar breytingar.

Endurnýjað útibú Arion banka er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi og verður útlit útibúsins og þjónusta með nýju sniði. Markmiðið með breytingunum er að bjóða viðskiptavinum enn þægilegri bankaþjónustu. Stór þáttur í því er nýr afgreiðslutími en útibúið verður opið alla daga vikunnar á sama tíma og verslanir í Kringlunni. Ekkert bankaútibú á landinu er með jafnrúman afgreiðslutíma. Í dag verður útibúið opið til klukkan 9 í kvöld.

Ýmsar aðrar nýjungar eru í útibúinu. Starfsfólk útibúsins verður til dæmis hvorki í gjaldkerastúkum né við skrifborð heldur á gólfinu, viðskiptavinum til aðstoðar, meðal annars við notkun á stafrænum þjónustuleiðum. Sérfræðingar í þjónustuveri Arion banka eru jafnframt aðgengilegir í gegnum fjarfundarbúnað. Í útibúinu verður viðburðasalur þar sem efnt verður til fræðslufunda og annarra viðburða.

Auk hefðbundinna hraðbanka er gjafakortahraðbanki í útibúinu. Þá verður gjaldeyrishraðbankinn, sem settur var upp síðastliðið vor, á sínum stað en hann afgreiðir evrur, Bandaríkjadollara, danskar krónur og bresk pund.

Meðfylgjandi eru tvær myndir sem teknar voru við opnun útibúsins í morgun.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira