06.06.2017

Arion banki opn­ar gjaldeyris­hrað­banka í Kringl­unni

Í síðustu viku setti Arion banki upp nýjan hraðbanka í útibúi sínu í Kringlunni. Hraðbankinn afgreiðir algengustu erlendu myntir, þ.e. evrur, pund, dollara og danskar krónur. Gengið í gjaldeyrishraðbankanum er það sama og hjá gjaldkerum í öðrum útibúum bankans.

Þessi nýjung er liður í endurhönnun útibús bankans í Kringlunni en sem dæmi fer öll afgreiðsla seðla og gjaldeyris í útibúinu nú fram í gegnum hraðbanka. Starfsfólk veitir viðskiptavinum að sjálfsögðu áfram alla þá aðstoð sem þeir þurfa, hvort sem það er að sækja greiðslukort, fá ráðgjöf vegna sparnaðar eða leggja inn eða taka út pening.

Fyrstu viðbrögð við nýja gjaldeyrishraðbankanum hafa verið mjög jákvæð. Áður er reynslan af gjaldeyrishraðbönkum afar góð en bankinn starfrækir fjölmarga slíka á Keflavíkurflugvelli og því koma þessi fyrstu viðbrögð ekki á óvart.

Gjaldeyrishraðbankinn er liður í þeirri þróun sem er að eiga sér stað í fjármálaþjónustu um allan heim þar sem aðgengi að fjármálaþjónustu eykst jafnt og þétt, ekki síst með tilkomu netbanka, apps og öflugri hraðbanka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira