23.06.2026

Arion banki ráð­gjafi í 6,7 millj­arða króna hluta­fjáraukningu hjá Lax­ey

Laxey hefur lokið 46,7 milljóna evra hlutafjáraukningu, sem nemur um 6,7 milljörðum króna, til fjármögnunar áframhaldandi uppbyggingar Laxeyjar í Vestmannaeyjum. 

Frá stofnun hefur Laxey safnað um 29 milljörðum króna í hlutafé og hefur fyrirtækjaráðgjöf Arion banka unnið farsællega með félaginu á þeirri vegferð. 

Samhliða hlutafjáraukningunni hefur Laxey undirritað skuldbindandi skilmálaskjal vegna sambankaláns til endurfjármögnunar núverandi skulda og til að fjármagna næsta áfanga í uppbyggingu félagsins. Lánveitendur eru Arion banki, DNB Carnegie, Rabobank og Eksfin. 

Um leið og við þökkum Laxey fyrir gott samstarf óskum við félaginu hjartanlega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga í sögu félagsins.  

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira