12.05.2026

Arion banki ráð­gjafi kaup­enda við kaup á Set

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi Orra Haukssonar og Gunnars Fjalars Helgasonar í kaupum þeirra á Set ehf. á Selfossi.

Set er rótgróið iðnfyrirtæki með yfir hálfrar aldar sögu sem sérhæfir sig í framleiðslu einangraðra röra og plaströra fyrir innviðakerfi, svo sem hita-, vatns- og fráveitur. Félagið, sem hefur byggt upp sterka stöðu á innlendum markaði, er með starfsemi á Íslandi en einnig sölu- og framleiðslueiningar erlendis.

Við viljum þakka þeim Orra, Gunnari og Logos fyrir afar gott og farsælt samstarf á öllum stigum ferlisins.

Við óskum kaupendum og seljendum innilega til hamingju með viðskiptin og erum sannfærð um að nýir eigendur muni nýta þann sterka grunn sem félagið byggir á til áframhaldandi vaxtar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira