14.05.2025

Arion banki ráð­gjafi og sá um fjármögnun kaupa á 93% hlut í Héðni hf.

Héðinn eignarhaldsfélag ehf. keypti nýverið 93% hlut í véltæknifyrirtækinu Héðni hf. Á bak við kaupin standa Guðmundur Sveinsson, fyrrverandi stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Héðins til áratuga, sem átti fyrir 24% hlut í Héðni, Halldór Lárusson núverandi stjórnarformaður Héðins, sem hefur setið í stjórn félagsins síðan 1994, og Eðvarð Ingi Björgvinsson, framkvæmdastjóri Héðins en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu í sextán ár. Seljendur eru RGI ehf. sem er í eigu þriggja lykilstarfsmanna Héðins, og þrír afkomendur annars stofnanda Héðins, Markúsar Ívarssonar. Arion banki var ráðgjafi kaupenda og sá um fjármögnun viðskiptanna.

Héðinn var stofnaður árið 1922 og hefur alla tíð þjónað íslenskum sjávarútvegi og iðnaði. Hjá félaginu starfa um 150 manns, velta ársins 2024 nam um 10 milljörðum króna og hagnaður eftir skatta nam um einum milljarði.

Rekstur félagsins skiptist í þrjú megin tekjusvið. Í fyrsta lagi skipaþjónustu en Héðinn hefur verið umboðsaðili Kongsberg Maritime og Bergen Diesel í ríflega 70 ár og þjónustar fiskiskip í Evrópu, Kanada og Bandaríkjunum. Í öðru lagi fiskimjöl, en félagið hannar, smíðar og þjónustar búnað til framleiðslu fiskimjöls og lýsis, allt frá einstökum hlutum og upp í heilar verksmiðjur sem eru staðsettar við norðanvert Atlantshaf og í Bandaríkjunum. Þriðja tekjusviðið er svo iðnaðarþjónusta, en undir það falla stór verk eins og nýlega lokinni Hverahlíðalögn fyrir ON auk umfangsmikillar þjónustu við stóriðju og orkuver. Í gegnum dótturfélag sitt Héðinshurðir ehf. er félagið jafnframt stærsti seljandi iðnaðar- og bílskúrshurða á Íslandi, auk þess að selja glugga og gluggakerfi frá H Fasader í Noregi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira