15.02.2018

Arion banki sam­þykk­ir að kaupa 9,5% hlut í bankanum

Arion banki hf. hefur samþykkt tilboð Kaupskila ehf., dótturfélags Kaupþings ehf., um að bankinn kaupi af Kaupskilum 9,5% af útgefnu hlutafé í Arion banka.

Ákvörðunin um kaupin er í takt við ákvörðun hluthafafundar Arion banka 12. febrúar síðastliðinn. Þar var ákveðið að taka upp í samþykktir bankans tímabundna heimild stjórnar bankans til að kaupa til baka hlutabréf útgefin af bankanum

Fyrirhugað er að uppgjör fram fari þann 21. febrúar 2018. Tilboð Kaupskila til Arion banka er háð því skilyrði að uppgjör hafi átt sér stað á milli Kaupskila og íslenska ríkisins varðandi nýtingu Kaupskila á kauprétti 13% hlutar íslenska ríkisins í Arion banka. Hafi framangreindu skilyrði ekki verið fullnægt á uppgjörsdegi, getur Kaupskil frestað uppgjörsdeginum um allt að tíu daga. Komi til þess að uppgjörsdeginum sé frestað hækkar kaupverð hinna seldu hluta í samræmi við skilmála samnings Kaupskila og íslenska ríkisins. Kaupréttur Kaupskila byggir á samningi við íslenska ríkið frá 3. september 2009.

Arion banki greiðir 90,087 krónur á hlut sem er sama verð og Kaupskil greiðir íslenska ríkinu við nýtingu kaupréttarins. Heildarkaupverð er rúmlega 17,1 milljarður króna og kemur sú upphæð til frádráttar arðgreiðslu sem samþykkt var á hluthafafundinum 12. febrúar og getur að hámarki verið 25 milljarðar króna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira