25.03.2024

Arion banki sem­ur við Def­end Ice­land

Samstarf um forvirkar aðgerðir gegn netárásum

Arion banki hefur gert samning við netöryggisfyrirtækið Defend Iceland um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins. Í samningnum felst að öryggissérfræðingar Defend Iceland herma netárásir hakkara og árásarhópa í því skyni að finna veikleika í kerfum bankans svo hægt sé að lagfæra þá áður en þeir valda alvarlegum skaða.

Eins og nýleg dæmi sýna er hart sótt að fyrirtækjum og stofnunum á netinu. Tölvuglæpamenn finna öryggisveikleika eða villu í net-, tölvu- og hugbúnaðarkerfum og nýta sér þá til að brjótast inn og ná stjórn á kerfunum. Markmið þeirra er að ná stjórn á hugbúnaði kerfanna, taka vefi niður eða komast yfir stafræn gögn og halda þeim í gíslingu þar til fórnarlömb árásanna greiða lausnargjald fyrir gögnin.

Með þátttöku sinni vill Arion banki leggja sitt af mörkum til að styðja almennt við netöryggi á Íslandi.

Benedikt Gíslason, forstjóri Arion banka:

„Öryggismál eru einn mikilvægasti þátturinn í okkar starfsemi og þjónustu. Til að tryggja öryggi gagna viðskiptavina okkar og verjast netárásum nýtum við meðal annars forvirkar öryggisráðstafanir. Það er því einstaklega ánægjulegt að stofna til samstarfs við Defend Iceland sem býður upp á slíkar ráðstafanir og mun efla þann þátt í okkar öryggisráðstöfunum. Defend Iceland gegnir mikilvægu hlutverki hér á landi þegar kemur að netöryggisþjónustu og auknu viðnámi fyrirtækja almennt gegn netárásum.“

Theódór Ragnar Gíslason, stofnandi Defend Iceland:

„Það er mjög ánægjulegt að fá Arion banka í lið með okkur í Defend Iceland. Okkar markmið er ekki bara að finna öryggisveikleika hjá þeim fyrirtækjum og stofnunum sem eru í viðskiptum við okkur heldur að auka áfallaþol samfélagsins í heild. Villuveiðigáttir eru skilvirkustu og um leið hagkvæmustu öryggisráðstafanir sem hægt er að nýta til að koma í veg fyrir að tölvuglæpamenn komist inn í kerfi fyrirtækja og valdi þar tjóni. Það skiptir miklu máli að fjármálafyrirtæki sem ber ábyrð á lykilinnviðum samfélagsins, eins og Arion gerir, skuli leggja sitt af mörkum til að búa til öruggara stafrænt samfélag.“

Um Defend Iceland

Defend Iceland er stofnað af Theódór Ragnari Gíslasyni, sem hefur umfangsmikla reynslu í tæknilegu netöryggi, með yfir 25 ára starfsreynslu á sviðinu. Hann er einn stofnenda öryggisfyrirtækisins Syndis og stofnaði ásamt öðrum nýsköpunarfyrirtækið Adversary sem var selt árið 2020 til ástralska öryggisfyrirtækisins Secure Code Warrior.

Villuveiðigáttir eins og Defend Iceland eru þekkt leið til að virkja öryggissérfræðinga sem herma aðferðir hakkara við leit að öryggisveikleikum og eru notaðar víða erlendis í því skyni.

Meðal samstarfsaðila Defend Iceland eru European Cybersecurity Competence Centre, Cert-IS, Fjarskiptastofa, Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík. Verkefnið hlaut nýverið 380 milljóna króna styrk frá Framkvæmdastjórn Evropusambandsins og 50 milljóna króna styrk frá Rannís.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
31. ágúst 2026

Arion banki breytir vöxtum

Eftirfarandi breytingar á óverðtryggðum inn- og útlánsvöxtum neytenda og fyrirtækja taka gildi fimmtudaginn 3. september næstkomandi.

Lesa meira
26. ágúst 2026

Leiðin að lánshæfu nýsköpunarfyrirtæki

Arion banki býður til fræðsluviðburðar í Borgartúni 19, fimmtudaginn 3. september kl. 17:00.

Lesa meira
26. ágúst 2026

Arion banki, Stefnir og Vörður fá viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki

Átján íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026 við hátíðlega athöfn á Nauthóli þann 20. ágúst síðastliðinn. Þar á meðal voru Arion banki, Stefnir og Vörður.

Lesa meira