18.01.2019

Arion banki sem­ur við RB um inn­leið­ingu á nýj­um grunn­kerf­um

RB og Arion banki skrifuðu í dag undir samning um innleiðingu á nýjum grunnkerfum bankans. Um er að ræða kerfi frá Sopra Banking Software og lausnir frá RB sem reknar eru sameiginlega fyrir íslenska bankakerfið. Sopra, sem er eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki Evrópu með yfir 40 ára reynslu, er samstarfsaðili yfir 800 fyrirtækja í 70 löndum og hefur nú þegar tekið þátt í tveimur innleiðingum á Íslandi.

Um er að ræða verkefni þar sem 40 ára gömlum sérhönnuðum innlána- og greiðslukerfum RB verður skipt út fyrir staðlaða alþjóðlega hugbúnaðarlausn. Markmið endurnýjunarinnar er að auka hagræði og draga úr kostnaði við rekstur upplýsingakerfa bankans og styðja við frekari vöruþróun. Kerfin munu taka mið af breytingum á evrópsku regluverki og þannig einfalda bankanum að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru.

Verkefnið er mjög umfangsmikið og koma á annað hundrað starfsmenn að því frá Arion banka, RB og Sopra. Gert er ráð fyrir að gangsetning verði á haustmánuðum 2020.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Grunnkerfi bankans skipta miklu fyrir alla okkar starfsemi og þjónustu. Rekstur þeirra er jafnframt stór kostnaðarliður í starfsemi bankans og með því að skipta út eldri kerfum fyrir nýrri sveigjanlegri kerfi munum við ná fram auknu hagræði. Nýtt kerfi mun einnig auðvelda okkur að þróa áfram okkar þjónustu og halda áfram að kynna nýjar starfrænar lausnir sem einfalda viðskiptavinum okkar að sinna sínum fjármálum.“

Friðrik Þór Snorrason, forstjóri RB:

„Samningurinn við Arion er mikilvæg staðfesting þess að RB sé á réttri braut í breytingum á innviðum íslenska fjármálakerfisins. Markmið okkar er að auka hagkvæmni og skilvirkni á fjármálamarkaði og styðja Arion banka við að veita hágæðaþjónustu til sinna viðskiptavina.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira