04.03.2016

Arion banki sig­ur­veg­ari Ís­lensku ár­angurs­verð­laun­anna

Fyrr í dag var tilkynnt að Arion banki væri sigurvegari Íslensku árangursverðlaunanna. Það eru stjórnir ÍMARK og SÍA sem veita verðlaunin. Um er að ræða nýtt form á þekktri keppni sem hingað til hefur kallast ÁRU-keppnin, þ.e. árangursríkasta auglýsingarherferðin.

Arion banki fékk verðlaunin fyrir auglýsingherferð þar sem kostir hraðþjónustu bankans, sem byggist fyrst og fremst á nýrri kynslóð hraðbanka, netbanka og appi, voru kynntir.

Verðlaunaafhendingin fór fram á ÍMARK deginum sem fram fer í dag, 4. mars 2016.

Birna Rún Gísladóttir, frá Arion banka, og Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, frá Hvíta húsinu héldu erindi á ÍMARK deginum þar sem verðlaunaherferðin var kynnt og sá árangur sem náðist innan Arion banka í kjölfar sívaxandi vinsælda hraðþjónustunnar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira