04.02.2016

Arion banki stækk­ar mark­flokka sér­tryggðra skulda­bréfa

Arion banki hf. lauk í gær útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi.

Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 1.000 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,30%. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 1.520 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,21%. Óverðtryggði flokkurinn ARION CB 22 var stækkaður um 3.280 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 6,76%.

Heildareftirspurn í útboðinu var 8.040 m. kr.

Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem teknir hafa verið til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 2. mars næstkomandi.

Það sem af er ári hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 9.120 m. kr. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 46.280 m. kr.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira