05.01.2017

Arion banki stækk­ar skulda­bréfa­út­gáfu í evr­um

Arion banki stækkaði í dag skuldabréfaútgáfu bankans frá því í desember. Stækkunin nemur 200 milljónum evra en upphaflega útgáfan nam 300 milljónum evra. Alls nemur útgáfan því í dag 500 milljónum evra eða 60 milljörðum íslenskra króna. Sem fyrr verður hluti útgáfunnar nýttur til að greiða niður eldri lán.

Skuldabréfin eru með lokagjalddaga í desember 2021, bera fasta 1,625% vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 1,55% álagi á millibankavexti. Barclays og Deutsche Bank sáu um viðbótarútgáfuna fyrir hönd bankans. Tilboð bárust frá yfir 20 fjárfestum og heildareftirspurn var yfir 200 milljónir evra.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira